Færsluflokkur: Kvikmyndir
13.3.2008 | 21:48
Guð minn góður
ég hélt að ég myndi pissa í mig
26.2.2008 | 13:40
Meira af samkynhneigð og kristnitrú
Horfði á rosalega öfluga mynd um helgina, sem ber heitið "For the bible tells me so". Í henni er fjallað um samkynhneigð og kristnitrú.
Í myndinni er farið yfir víðan völl en aðalþráðurinn í henni eru nokkrar fjölskyldur, sem eru allar heittrúaðar í kristni, en eiga það öll sameigilegt að eitt af börnunum er samkynhneigt. Þetta er rosalega fræðandi og virkilega góð mynd. Uppbyggingin í henni er með því skemmtilegra sem ég hef séð í heimildamynd.
Einnig eru allar kenningar kristinna um samkynhneigð teknar og afsannaðar á mjög upplýsandi og einfaldan máta. Talað er við fleiri fleiri fræðimenn um biblíuna og einnig fyrrverandi öfgaprest.
Jesús talar um umburðalyndi og kærleika, en í nafni biblíunar er fólk gjörsamlega eyðilagt fyrir það eitt að vera samkynhneig, vegna þess að menn halda því fram að þetta sé "val" og "syndugt". Já, ég varð eigilega verulega reiður eftir að horfa á þessa mynd, en líka rosalega glaður því að hún sýnir marga manni fallega hluti sem eru líka að gerast.
Ég krefst þess að sem flestir komi sér yfir eintak af myndinni hið snarasta og horfi á hana. Og vil ég því koma þeim skilaboðum til allra sem nota "Guð" og "Jesús" til að fela sig á bakvið eigin fordóma að hundskammast sín bara og hætta að smyrja nafn kristnitrúar með viðbjóði.
Hér gefur að sjá trailer
Kvikmyndir | Breytt 27.2.2008 kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.2.2008 | 19:50
ég hélt að ég myndi deyja...
Leikhópurinn á bakvið raddirnar í Spongebob Squarepants talar yfir nokkrar af perlum kvikmyndasögunar...
6.2.2008 | 14:17
Dr Steve Brule
Þessi maður er í miklum metum hjá okkur félögunum þessa dagana, enda er þetta sannkölluð hvunndagshetja
30.1.2008 | 16:02
Þetta er algjörlega ótrúlegt
Ég á ekki orð yfir þessu
3 menn endurskapa byrjunaratriðið í Saving private Ryan
Atriði sem þurfti 1000 aukaleikara í...
Svo notum við að sjálfsögðu tækifærið og smellum inn einu myndskeiði af þessum líka hönk, svona í tilefni af því að steini er að verða einstæð móðir ;)
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 16:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.1.2008 | 19:13
Nýtt myndband fyrir einn fremsta raftónlistarmann landsins
Hérna gefur að sjá nýtt myndband sem ég var að dunda mér við fyrir Off the system.
Myndbandið er klippt í premier og snurfusað í aftereffects. Myndbrotin eru úr myndinni "le Magnifique" með engum öðrum en einum kynþokkafyllsta manni síðustu aldar Jean-Paul Belmondo.
Kvikmyndir | Breytt 25.1.2008 kl. 00:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.12.2007 | 17:49
Lítil kettlingagrey
Jæja... loksins koma myndirnar ;)
Hér gefur að sjá hana Luci, aðeins 2 dögum áður en hún eignaðist litlu greyjin... eins og sjá má er hún orðin ansi hlunkaleg...
Hérna kúra litlu greyjin, fyrst gaut Luci þeim undir rúm, þannig að við þurftum að bjarga þeim á notalegri stað ;)
Afskaplega væri notalegt að kúra svona núna *geisp*
Hana... nú ætti Anna K að verða kát og glöð....
17.12.2007 | 16:50
verðandi jólakveðjur frá útlöndum
Jæja, á morgunn förum við til París, og á föstudaginn höldum við til Hong Kong... langaði bara að koma kveðjum á framfæri til ykkar ;)
Ætla að reyna að vera með smá ferðablogg og myndir og þ.h á næstunni
Bless á meðan
16.12.2007 | 19:00
Móðursýki
Á þessi fjandans klámmóðursýki sér engin mörk? mega börn ekki sjá "fáklætt fólk" lengur? hvað er það versta sem getur gerst?
þetta er viðbjóðslegur heimur, við getum ekki endalaust verndað fólk fyrir því.
Væri ekki nær að einbeita sér að meira áríðandi málefnum...
eins og þessari óhugnalegu þróun?
Fáklæddar konur á vefjum tengdum Leikjaneti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 19:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.12.2007 | 20:31
Kettlingar og raftónlist
Kisan okkar var að eignast kettlinga í nótt, myndir fylgja fljótlega ;)
En þangað til þá er hérna vídjó sem ég klippti fyrir hann Gunnlaug vin minn og heitir lagið "bodysteps" -> www.myspace.com/offthesystem
En myndbrotin eru fengin úr myndinni "13 Tzameti" -> http://imdb.com/title/tt0475169/
En þessi útgáfa er þó ekki endanleg, þetta er unnið á premier og after effects...