Látum nú reyna á prentfrelsið

ja hérna, rambaði inná bloggið hjá hr öfgakristnum Jón Vali og viti menn, þar eru birtar myndir af dauðum fóstrum... Ekki vissi ég að maður mætti birta hérna hvaða viðbjóð sem er undir skyldi prentfrelsis og þykir mér þetta hið besta mál.

Þessi hérna mynd hérna fyrir neðan fær etv fólk um að hugsa sig tvisvar um áður en það stútar sér með haglabyssu







Hver vill hauskúpur?

Fátt finnst mér sýna dauðleika mannskepnunar jafn vel og hauskúpur, þær eru yfirleitt notaðar til að tákna eitthvað einstaklega eitrað eða eitthvað einstaklega slæmt.

En þær eru einnig einstaklega merkilegar til að dáðst að, að geta virt fyrir sér höfuðbein einhvers sem hefur látist. Með tilkomu alnetsins er hægt að nálgast næstum allt (hvort sem það er löglegt eða ólöglegt). 

Lengi hafði ég heyrt að maður gæti fengið hauskúpur í gegnum internetið, ég ákvað að slá til og sjá hvort að það væri eitthvað til í þessu, sló inn í google "human skulls purchase" og viti menn, niðurstöðurnar létu svo sannarlega ekki á sér standa.

Og það sem meira er, það er helvíti gott úrval.  

Þær dýrustu eru hauskúpur úr börnum og kúpur sem voru með hverskyns fæðingar/andlits galla. Ein sú dýrasta sem ég fann var úr fóstri og ein sem var með sveðjufari þvert yfir andlitið. Það tísti í mér af ghoulish kátinu (sletti því ég fann ekkert samstætt orð úr íslenskunni...)

Að er virðist sýnist mér flestar hauskúpurnar koma frá Kína, ekki amalegt að eiga eina slíka og getað velt því fyrir sér hver og hvaðan hauskúpan kom, hver átti hana og hvernig fór fyrir honum? Oft þarf maður að vísu ekkert velta því fyrir sér hvernig viðkomandi lést því að einn valmöguleikinn af áðurnefndri síðu var "violent deaths", ekki amaleg afmælisgjöf það.  

Hér eru nokkur dæmi 



Hann hefur verið sæmilega tenntur þessi herramaður

 

Hauskúpa úr fóstri



Annar tannfagur kínverji



"gangster" sem hefur fengið kúlu í gegnum höfuðið

 Já lesandi góður, það er sko ýmislegt sniðugt hægt að fá á internetinu ;) 


Myndatökur Sérsveitarinnar

Mér stendur örlítill stuggur af myndatökum sérsveitarmanna. Þeir mynda alla bak of fyrir sem verða á vegi þeirra við einhverjar aðgerðir. Þetta er aðferð sem er notuð í USA við að koma höggi á mótmælendur bandaríkjastjórnar. Þeir reyna að komast að því hverjir eru forsprakkarnir og geyma upplýsingar um þá í vissum gagnabönkum.

Svo þegar þeir vita hverjir eru forsprakkarnir þá einbeita þeir sér að því að taka þá úr umferð sem fyrst svo að mótmælin leysist upp hið snarasta. Þetta er orðið svo mikið vandamál að mótmælendur í USA eru farnir að vera með grímur þegar þeir mótmæla til að gera lögreglunni erfitt um vik.

Einnig finnst mér sérsveitin búin að vera haga sér eins og valdaóðir brjálæðingar. sbr dæmið í keflavík þegar þeir réðust á saklausan borgara sem var að reyna að komast heim til sín og nefbrutu (ef ég mann rétt) og spreyjuðu piparspreyi í augun á faðir þess sem var nefbrotinn þegar hann dirfðist að gagnrýna aðgerðir þeirra, hlupu á eftir honum inní íbúðina og spreyjuðu móðir hans líka.

Nýjasta nýtt í "riot" control í USA eru svokölluð nunchuks (2 prik með keðju á milli). Þegar mótmæli eru í gangi þá reyna þeir eins og áður segir að taka niður forsprakkana, þeir vefja kylfunum utan um hand og fótleggi og bera þá burt. Og ef þú streitist á móti þá herða þeir tökin þannig að þeir handleggsbrjóta viðkomandi, og eru lausir allra mála því að viðkomandi var að "streitast á móti handtöku".

Þessi þróun er vægast sagt ógnvekjandi í ljósi þess að sérsveitin er farin að taka upp svipaðar aðferðir í þessum málefnum. 

"Ekki dirfast að gagnrýna eða vera með nokkurn mótþróa, þá ertu algerlega fucked" aðferðin...

 Update: ég er ekki alveg með heimildir mínar um keflavík á hreinu, glöggur lesandi vakti athygli mína á því að þetta gætu hafa verið óbreyttir lögreglumenn og skila ég til hans ástarþökkum ;) 


mbl.is Ósáttir við myndatöku lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blóðlosti

Ég fæ aldrei nóg af viðbjóði, það er fátt sem svalar óbilandi þorstanum í blóð, ofbeldi og geðveiki... hér eru þó nokkur dæmi



Það skiptir engu hvað þú gerir ef það hefur ekki sál, því miður fer listsköpunarverkum með einhverskonar konar sál sífækkandi.

Svona dreymir mig um að eyða ellinni


Því úrkynjaðra og viðbjóðslegra... því betra?

Í gær lá ég heima með flensu og hita... kærastan mín var nýflogin til berlín á árshátíð þannig að ég lá heima einn. Ég lá uppí rúmi í sveittu móki til klukkan að verða 5.

Ég staulaðist veiklulega á fætur og náði að með herkjum að leggjast uppí sófa og kveikja á sjónvarpinu. Tófa, stálpaði kettlingurinn okkar, kom umsvifalaust til mín, malandi og heimtaði að fá klapp og klór bak og fyrir áður en hún lagðist í kjöltuna mína og sofnaði værum svefni hinna saklausu.

Ég greip fjarstýringuna og með skjálfandi höndu kveikti ég á myndinni "Untraceable". Myndin sem slík var í meðallagi, bara enn einn "við erum í kapphlaupi við tímann áður en ótrúlega færi raðmorðinginn drepur allt sem okkur er kært" söguþráðurinn. Hún bætti litlu við flóru slíkra mynda. En hinsvegar varpaði hún fram einstaklega áhugaverðum punkti varðandi þróun internetsins.

Allt frá því að internetið fór að verða aðgengilegra almenningi hafa tveir hlutir verið einna vinsælastir, klám og hverskyns viðbjóður. Maður getur fundið hvað sem hugurinn girnist á internetinu, hvort sem það er kúkaklám eða aftökur. Þú getur fundið upptökur af sjálfsmorðum, bílslysum, lestarslysum, morðum, hverskyns limlestingum osfrv osfrv.

Við höfum öll einhverntíma kíkt á slíkt efni, sumir meira en aðrir. Okkur virðist þyrsta í blóð og ofbeldi. Þegar maður les greinar í blöðunum um ofbeldisverk og nauðganir, þá langar manni í krassandi lýsingar og því grafískara því betra.

Sem dæmi horfði ég á rússneskann hermann (samkvæmt lýsingunni á vídjóinu) skorinn á háls, hann lá á jörðinni og hnífnum var stungið í gegnum hálsinn á honum og hann ristur upp, og maður sá aumingja manninn gefa upp öndina á örfáum andartökum. Maður horfir á vídjóið, segir etv "ji minn" eða "foj barasta". Verst þótti manni að vita ekki aðdragandann að þessu eða bara hvur fjárinn var í gangi þarna.

Sjaldan ef ekki aldrei hefur maður velt því fyrir sér hver þessi maður var, hvar ólst hann upp og hvernig persóna var þetta? Átti hann börn eða kærustu? Nei, manni þyrstir í viðbjóðinn.

Í fyrrnefndri kvikmynd (untraceable) er blessaður vondi raðmorðingjinn að drepa saklaust fólk, á þann hátt að hann varpar öllu á internetið, þ.e.a.s með webcam og svo er hann með tengdar græjur við tölvuna sem drepa fórnalambið hraðar eftir því sem fleiri skoða síðuna.

Í kjölfarið á þessu fór ég í heilmiklar vangaveltur um mannvonsku almennt. Við erum jú versta og grimmasta skepnan á jörðinni. Við gerum hræðilega hluti ofan á hræðilega hluti. Hvort sem það er efnahagslega, mannréttindabrot eða hverskyns óskiljanleg ofbeldisverk.

Manni er farið að líða eins og agnarlitlu rykkorni, sem hefur ekkert að segja með framvindu mála og er algjörlega máttvana til að breyta einu eða neinu. Hver önnur fréttin um hræðileg verk mannvonsku, hvort sem þau eru framin í nafni trúar, lands eða bara einfaldlega til að svala auðvirðilegum fýsnum okkar.

Þótt að manni sé nauðgað eða maður laminn í klessu eða maður snuðaður um réttmæta meðferð af lögreglunni. Þá yptir fólk bara öxlum, les kannski um þetta í blaðinu og meira gerist ekki.

Sem dæmi má nefna íslenska dómskerfið, sem er fullt af misræmi varðandi dóma í ofbeldis og nauðgunarmálum. Ef ég reyni að flytja inn glás af e-pillum má ég búast við þyngri dóm heldur en ef ég nauðgaði einhverjum á hrottafenginn hátt.

Fjööööölmörg fórnalömb í kynferðisbrotamálum fá aldrei uppreisn æru né eiginlegt réttlæti... Og hvað með alla fangana í Írak og Guantanamo?

Já lesandi góður, við skiptum svo sannarlega engu máli í augum heimsins, við erum bara enn ein talan í tölfræðinni.

Að lokum ætla ég að benda ykkur á hann Steve Kurtz, sem er enn eitt fórnarlamb Bandaríkjastjórnar þessa dagana

http://en.wikipedia.org/wiki/Steve_Kurtz


Hinar dularfullu nefndir Kanada

Ég kynntist rafdúetnum Boards of Canada fyrir nokkrum árum. Fékk þá í hendurnar plötuna Music has the right to children, fannst þetta helv. nett plata og hlustaði á hana í gríð og erg. Sum lögin minntu mig einhverja hluta vegna á barnæsku mínu og á að það hvernig það var að vera barn, á meðan önnur voru köld og einhver óskilgreind illska virtist bíða eftir manni handan við næsta horn, en einstaklega skemmtileg og flott lög engu að síður.
Stuttu eftir það þá kom út platan Geogaddi, óður og uppvægur hringdi ég og pantaði hana frá 12 tónum, að mig minnir (bjó út á landi á þessum tíma).

Ég var dolfallinn við fyrstu hlustun, strax þegar upphafstónarnir byrjuðu, en það var auðvitað lagið “Ready lets go” og þegar “Music is Math” hófst þá var ég kominn í trans-kennt ástand og erfitt var að eiga við mig samskipti sökum þess að ég lá kylliflatur í dularfullu móki.
Ég nauðgaði plötunni töluvert og hafði hana í geislaspilaranum hvert sem ég fór, hvort sem það var í göngutúr, í bíltúr eða í heimsóknir… Eftir þessa óhóflegu hlustun fór ég að taka eftir því að það var eitthvað undarlegt  í gangi á “bakvið” tónlistina. Undarlegar brenglaðar raddir sem varla var hægt að greina hvað sögðu og ýmis suð og sörg. Ég setti þá Music has the right to children aftur á fóninn og þar var það sama uppi á teningnum, strax duttu mér í hug gömlu kellingasögurnar um földu skilaboðin í rokktónlist, djöfladýrkun og hvaðan af verra, var eitthvað sannleikskorn í þessu eftir allt saman?


Í ósvalandi forvitni minni æddi ég rakleiðis á google og sló inn leitarorðin “boards of canada subliminal” og viti menn, ég komst inná vægast sagt athyglisverða síðu með vissum fróðleiksmolumum um einmitt undarlega hluti í gangi í bakgrunni tónlistar BoC. En fyrrnefnd síða virðist vera gufuð upp af netinu... veit ekki hvort ég ætti að vera að hafa áhyggjur af þessari færslu.

En allavega, hérna er smá yfirferð yfir hin undarlegu skilaboð í tónlist Boards of Canada, sem mér fannst ansi truflandi í reyndinni… og sérstaklega því meira sem ég hlusta á tónlistina þá tek ég alltaf meira og meira eftir þessu.

Fyrir það fyrsta, þá eru meðlimir Boards of Canada (Mike Sandison og Marcus Eoin) víst mjög trúaðir, en ég veit að vísu ekki hvaða trúarbrögð þeir aðhyllast. Þeir eru skoskir og bjuggu saman í Canada þegar þeir voru yngri. Þeir hafa oft sagt í viðtölum að tónlistin þeirra sé sprottin frá heimildamyndum sem Nefndir Canada styrktu, samanber nafnið og er lagið Dandelion þar sem Leslie Nielsen er að tala um hraun og eldgos (klippur úr gamalli heimildamynd), tilvísun í þessa nafngift.


Í laginu 1969 af Geogaddi, heyrist í bakgrunninum vera talað um Branch Davidians, en það var sértrúarsöfnuðurinn sem lést í átökum við lögreglu í Waco, Texas, þeir höfðu skvett bensíni út um allt og þegar lögreglan skaut in táragasi þá fór stóð allt í ljósum logum á nokkrum sekúndum.
Lengin á laginu er 4 mínútur og 19 sekúndur, en þetta gerðist 19 Apríl.
1969 var árið sem Manson morðin gerðust, og einnig sama ár sem táragasið var notað í Waco einnig hef ég heyrt að ef maður snýr röddinni sem er keyrð í gegnum vocoder segir hún “David Koresh” sem var spámaður Branch Davidians safnaðarins.
Árið 1969 er árið sem Kirkja Satans var stofnuð.

A is to B as B is to C
Þarna eru mikið af hlutum að gerast í bakgrunninum, það eru raddir spilaðar afturábak sem segja “We love you all”, hundar að gelta og tengsl við gullinsniðið, en það er rosalega mikið af stærðfræðitilvísunum í lögum með BOC.

You could feel the Sky
Setningin “a god with hooves” heyrist tvisvar í laginu, spilað afturábak, sumir halda því fram að þetta sé tilvísun í Pan, eða einhvern annan náttúruguð, því að BOC eru mikil náttúrubörn og vilja helst alltaf vera út í sveit.

Music is Math
Setningin “the past inside the present”, en þetta er setning eftir Bertolt Brecht, sem var þýskur marxisti og leikritahöfundur sem fór í sjálf-útlegð (self-exile) til skandínavíu 1933, bækur hans voru brenndar í þýskalandi og ríkisborgararéttur hans afnuminn.
Boards of Canada eru víst þekktir fyrir það að vera í “sjálfs-útlegð” og eru með miklar skoðannir á ritskoðun. Þó að ég hafi ekki fundið neitt efni sem styður þetta, en kannski leitaði ég bara ekki nógu vel. En hér gefur að sjá setninguna í fullu samhengi:

"The postmodern suspension of the past inside the present can actually be traced to Brecht, particularly to his realization that the rapidity of change and the increase of knowledge in the modern world have forced us to see history in a new light: not as a finalized past but as a process in which the new continuously transfigures the old."

In a Beautiful place in the Country
Mér finnst þetta eitt óhugnarlegasta lag BOC. Setningin “come out and live with a religious community in the country” er spiluð aftur og aftur (eða söngluð) og keyrð í gegnum undarlegan effect, sem gefur röddinni yfirnáttúrulegan blæ.
En setningin “a beautiful place in the country” er bein tilvísun í konu (Amo Bishop Roden) sem tilheyrði Branch Davidians söfnuðinum, og lýsti hún heimili safnaðarins í Waco, Texas sem fallegum stað í sveitinni. Einnig er lagið Amo Bishop Roden tribute til hennar og það er  mynd af henni er á bakhlið smáskífunnar
Á umslagi smáskífunar sést einnig hægra auga David Koresh, en hann var yfirlýstur spámaður (prophet) Branch Davidians safnaðarins.. Þess má geta að flestir meðlimir Branch Davidians brunnu inní í umsátri við lögregluna.

The devil is in the details
fæ alltaf gæsahúð þegar ég heyri þetta lag, en afmyndaða og brenglaða röddin er víst upptaka frá dáleiðslutíma, prufaðu að hlusta á lagið og einbeita þér að röddinni

Marcus Eoin sagði í viðtali að þeir tryðu því að það væru öfl í tónlist sem væru næstum yfirnáttúrleg, og að hann héldi að maður gæti stjórnað fólki með tónlist að það væri það sem þeir væru að reyna að gera. Að dáleiða fólk með tónlist eða földum skilaboðum sem þeir hafa viljandi sett í tónlistina. Einnig sagði hann að oftast væri þetta bara einkahúmór til að sjá hverju þeir geta laumað í lögin.

Sagt er að hægt sé að finna gullinsniðið í mörgum lögum BOC, það er notað  til að ákvarða lengd á lögum, semja melódíur og stilla bylgjulengdir.

Hlustunartími Geogaddi er 66:06 mínútur… það eru 23 lög, tala sem á að vera heilög occulistum.

Boards of Canada semja víst alla sína tónlist í Hexagon Sun Studios, sem er einmitt, fallegur staður í sveitinni.

Nýjasta platan þeirra "The Campfire headphase" kom út í oktober 2005 og ber að nefna að hrekkjavaka er í Október.

Og sagði Michael Sandison þessa undarlega setningu um plötuna af því tilefni

"We usually imagine our music to have a visual element while we're writing it, so we were picturing this character losing his mind at the campfire and compressing weeks of events into a few hours, in that time-stretching way that acid fucks with your perception."

Og að lokum er það rúsinan í pylsuendanum, nýjasta smáskífan þeirra kom út í 6 júni 2006 (6/6/06)

Þetta voru allavega nokkur brot af því besta sem ég fann um BOC og undarleg skilaboðin í tónlistinni þeirra. Ég fann mest af þessum fróðleiksmolum  af áðurnefndri síðu og þykir mér það ákaflega leitt að ég gat ekki fundið hana aftur, ég þýddi þetta bara og endurorðaði eftir mínu höfði. Mig langaði að vita hvort það væru einhverjir fleiri sem hefðu tekið eftir þessu.

Og til gamans skellum við inn nýjasta myndbandinu með þeim kumpánum, svona til að fólk geti fengið betri tilfinningu fyrir tónlistinni. 

 

 


Guð minn góður

ég hélt að ég myndi pissa í mig

 


Meira af samkynhneigð og kristnitrú

Horfði á rosalega öfluga mynd um helgina, sem ber heitið "For the bible tells me so". Í henni er fjallað um samkynhneigð og kristnitrú.

Í myndinni er farið yfir víðan völl en aðalþráðurinn í henni eru nokkrar fjölskyldur, sem eru allar heittrúaðar í kristni, en eiga það öll sameigilegt að eitt af börnunum er samkynhneigt. Þetta er rosalega fræðandi og virkilega góð mynd. Uppbyggingin í henni er með því skemmtilegra sem ég hef séð í heimildamynd. 

Einnig eru allar kenningar kristinna um samkynhneigð teknar og afsannaðar á mjög upplýsandi og einfaldan máta. Talað er við fleiri fleiri fræðimenn um biblíuna og einnig fyrrverandi öfgaprest.

Jesús talar um umburðalyndi og kærleika, en í nafni biblíunar er fólk gjörsamlega eyðilagt fyrir það eitt að vera samkynhneig, vegna þess að menn halda því fram að þetta sé "val" og "syndugt". Já, ég varð eigilega verulega reiður eftir að horfa á þessa mynd, en líka rosalega glaður því að hún sýnir marga manni fallega hluti sem eru líka að gerast. 

Ég krefst þess að sem flestir komi sér yfir eintak af myndinni hið snarasta og horfi á hana. Og vil ég því koma  þeim skilaboðum til allra sem nota "Guð" og "Jesús" til að fela sig á bakvið eigin fordóma að hundskammast sín bara og hætta að smyrja nafn kristnitrúar með viðbjóði. 

Hér gefur að sjá trailer

 


ég hélt að ég myndi deyja...

Leikhópurinn á bakvið raddirnar í Spongebob Squarepants talar yfir nokkrar af perlum kvikmyndasögunar...

 


Dr Steve Brule

Þessi maður er í miklum metum hjá okkur félögunum þessa dagana, enda er þetta sannkölluð hvunndagshetja

  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband